Kraj : Þingeyjarsveit
Tvoření

Grunnskóla áfram í byggðakjarnanum: Stöðvum fyrirhugaða lokun Litlulaugaskóla að Laugum í Reykjadal.

Navrhovatel není veřejný
Petice je adresována
Meirihluti sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar
89

Navrhovatel byl stažen

89

Navrhovatel byl stažen

  1. Zahájena 2015
  2. Sbírka byla dokončena
  3. Předloženy
  4. Dialog
  5. Neúspěšný

22. 04. 2015 3:21

Það var svona skyndiákvörðun að fara af stað með undirskriftarsöfnun á netinu á sínum tíma. Málið var ekki undirbúið með neinum fyrirvara en þá átti ég nú von á því að sökum þess hvers eðli þetta mál er að það myndi rata í stóru fjölmiðlana. Þegar það yrði myndi koma sér vel að hafa farveg fyrir fólk til þess að sýna stuðning. Ekkert hefur orðið að því enn að stóru fjölmiðlarnir sýni þessu máli áhuga og enn vita fáir landsmenn af því sem er að gerast í Þingeyjarsveit í skólamálum. Í yfirlýsingu með undirskriftarsöfnuninni á sínum tíma setti ég fram þá fullyrðingu um að vel mætti fá 1.000 fylgjendur í þessa undirskriftarsöfnun. Það markmið náðist ekki og hér eru 89 undirskriftir. Enginn hefur bæst í hópinn í margar vikur. Ég mun því ekki gera neitt frekar með þessar undirskriftir og gögnunum verður eytt. Ýmislegt bendir til þess að barátta mín við sveitarfélagið í þessu máli hafi reynst mér dýrkeypt og bið ég alla þá sem skrifuðu hér undir afsökunar á því að ég treysti mér ekki til þess að koma rödd þeirra til skila. Ég vil samt þakka öllum sem tóku þátt og skrifuðu undir og hvet fólk til þess að halda áfram að fylgja sannfæringu sinni og láta frá sér heyra þegar því er misboðið því eins og segir í kvæði Tómasar Guðmundssonar, Heimsókn:
Á meðan til er böl sem bæst þú gast,
og barist var á meðan þú sast,
er ólán heimsins einnig þér að kenna.

Með kærri kveðju,
Aðalsteinn Már Þorsteinsson
Hjalla í Reykjadal.


27. 01. 2015 19:50

Fyrst er að biðjast afsökunar á því að það vantar r í byggða(r)kjarnann í nafninu.
Það og svo ýmislegt í textanum ber þess merki að síðan var stofnuð eftir að komið var fram yfir miðnætti.
Í framhaldi af ábendingum á bloggsíðu Ástu Svavarsdóttur, "Frúin á Hálsi" hef ég nú lagað orðalagið og mildað nokkuð frá því sem var. Hún bendir réttilega á að það þjóni ekki málstaðnum að vera svo stóryrtur sem ég var í upphaflegum texta. Hvernig textinn var má áfram lesa í bloggfærslu Ástu.
Um leið og ég þakka ábendinguna vil ég hvetja þá sem hafa rök gegn málstaðnum sem hér er settur fram til þess að skrifa þau hér inn á siðuna (það getur hver sem er gert án þess að skrifa undir).
Þá sem styðja málstaðinn hvet ég til að skrifa undir. Hægt er að haka við og óska eftir því að nafn manns birtist ekki á síðunni (við búum í litlu samfélagi og eðlilegt að einhverjir vilji óska þess).
Þá sem þegar hafa skrifað undir hvet ég til þess að deila þessari síðu á samfélagsmiðlum og skora á fleiri að skri
New petition text: Meirihluti sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar ákvað á fundi þann 18. desember 2014 að loka Litlulaugaskóla í vor og keyra alla nemendur skólans rúmlega 20 km leið í Hafralækjarskóla í Aðaldal.
Þó svo að margt hafi verið gert til þess að láta líta svo út sem um vandaða og faglega ákvörðun sé að ræða sem tekin sé í fullu samráði og sátt við íbúana verður hverjum þeim sem rýnir í fyrirliggjandi gögn og kynnir sér málið ljóst að svo er ekki. Þessi ákvörðun er ekkert Margt mælir gegn ákvörðuninni, eingöngu voru skoðaðir þrír kostir í skólamálum og af þeim kostum sem þó voru skoðaðir virðist sem engir hafi í raun verið skoðaðir ofan í kjölinn. Allt þetta og fleira vekur upp grun um að annað hafi ráðið hér för en tilraun íbúa Þingeyjarseitar utan Reykjadals til þess að brjóta niður samfélagið í einum hluta sveitarfélagsins fagmennska og kúga íbúana þar í krafti meirihluta. vönduð stjórnsýsla.
Það er sannfæring þeirra sem standa að baki þessari undirskriftarsöfnun að þó svo að íbúar á öðrum skólasvæðum í Þingeyjarsveit en Litlulaugaskóla sjái ekki hversu glórulaus þessi ákvörðun er þá sjái það margir aðrir - fleiri en þeir sem sjá það ekki, fleiri en allir íbúar í Þingeyjarsveit til samans. Neue Begründung: Þingeyjarsveit er víðfemt en fámennt sveitarfélag. Útsvarstekjur á hvern íbúa eru með þeim lægstu á landinu og íbúum hefur fækkað nokkuð á síðustu árum. Í sveitarfélaginu er einn lítill byggðakjarni, Laugar, Íbúum á Laugum hefur fjölgað nokkuð á síðustu árum og þar er Framhaldsskóli sem segja má að sé skatttekjulega séð stóriðjan í Þingeyjarsveit.
Lokun grunnskóla í byggðakjarnanum byggðarkjarnanum mun veikja hann, hann og grafa undan rekstri sveitarfélagsins rekstrinum. Skaðinn sem af hlýst kann að verða óbætanlegur og reka fleig sökum þess hvernig farið er fram er hætt við að sár myndist í gegnum samfélagið. Það mun valda óbætanlegum skaða og valda sárum samfélaginu sem seint seint, ef þá nokkurn tímann munu gróa. Það er Við teljum því mjög áriðandi að vikið ferði verði frá þessari ákvörðun.
Íbúar Þingeyjarsveitar eru í dag innan við eitt þúsund. Við sem stöndum fyrir þessari undirskriftarsöfnun erum sannfærð um að við getum fengið fleiri en það til þess að skrifa undir áskorun okkar hér til meirihluta sveitarstjórnar um að hverfa frá ákvörðun sinni. Við hvetjum alla til þátttöku og bendum á að einnig getur hver sem er sett inn rökstuðning- hvort sem heldur menn eru með eða á móti. Eins má senda fyrirspurnir og deila þessar söfnun á samfélagsmiðlum. Takk fyrir þátttökuna.


23. 01. 2015 22:04

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar fundar að jafnaði annan hvern fimmtudag kl. 13:00.
Síðasti fundur var 15. janúar og þó svo að mótmælafundur hafi eingöngu verið auglýstur á Facebook kvöldið áður mættu 15 manns (mest voru 12 í einu að mótmæla). Íbúar sveitarfélagsins eru tæplega 1.000 og mæting var því 1,5%. Það samsvarar því að rúmlega 1.800 Reykvíkingar mæti á mótmæli eða 270 Akureyringar.
Mótmælt verður aftur fyrir utan skrifstofu sveitarfélagsins í Kjarna fimmtudaginn 29. janúar. Allir sem hafa tök á því og áhuga eru hvattir til þess að mæta og hafa með sér pott eða pönnu.


Pomozte posílit občanskou účast. Chceme, aby vaše obavy byly vyslyšeny a zůstaly nezávislé.

Povýšte nyní